Leikskólinn Kirkjuból er þriggja deilda leikskóli, staðsettur nálægt miðbæ Garðabæjar í fallegu og fjölbreyttu umhverfi. Í leikskólanum dvelja allt að 61 barn á aldrinum 1 árs til 5 ára. Áherslur í starfi með börnum eru vellíðan, gleði, sjálfstæði og lýðræði ásamt náttúru og umhverfi.
Einkunnarorð leikskólans eru: Virðing - Væntumþykja - Vinátta.
Í leikskólum Garðabæjar er möguleiki á að sækja um styrki í Þróunarsjóð leikskóla til að styðja við nýbreytni og framþróun í starfi. Einnig er til staðar sérverkefnasjóður sem hver og einn leikskóli hefur til umráða til að styðja enn frekar við leikskólastarfið.
Við tökum vel á móti nýju starfsfólki og leggjum áherslu á jákvætt og uppbyggilegt starfsumhverfi sem er í mótun.
Við leitum að jákvæðum, stundvísum, ábyrgum og heiðarlegum starfsmanni til að bætast við metnaðarfullan starfsmannahóp leikskólans.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Vinna við stuðning og sérkennslu barna á deild í samstarfi við sérkennslustjóra.
- Vera hluti að sérkennsluteymi og sitja teymisfundi
- Vinnur að áætlanagerð og mati á námi barna í samráði við sérkennslustjóra og annað starfsfólk
Menntun, hæfni og reynsla:
- Leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði leikskóla
- Reynsla af starfi á leikskólastigi eða starfi með börnum er æskileg
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði
- Góð samskiptahæfni
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. lög nr. 95/2019.
Hlunnindi fyrir starfsmenn
- Heilsuræktarstyrkur fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
- Bókasafnskort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
- Menningarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
- Sundlaugarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
- Árshátíð er starfsmönnum að kostnaðarlausu
- Íslenskunámskeið fyrir erlenda starfsmenn
Um er að ræða stuðning við börn á deild sem er laus nú þegar eða eftir samkomulagi.
Umsóknarfrestur er til og með 11. október 2024.
Nánari upplýsingar um starfið veita Ragnheiður Anna Haraldsdóttir, leikskólastjóri og Berglind Ósk Þráinsdóttir aðstoðarleikskólastjóri í síma 591 9360. Einnig hægt að senda tölvupóst á netfangið: kirkjubol@kirkjubolid.is
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag. Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Umsækjendur eru beðnir um að sækja um með því að smella á Skrá inn og sækja um hér fyrir neðan. Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilskrá.