Umsjónarkennari í Hofsstaðaskóla

side photo

Hofsstaðaskóli auglýsir eftir umsjónarkennara á yngra stigi vegna barnsburðarleyfis frá miðjum nóvember og út skólaárið. Í skólanum eru 480 nemendur í 1. - 7. bekk og þar starfa um 80 starfsmenn með það að markmiði að hlúa að nemendum námslega og félagslega og koma til móts við áhuga þeirra og getu. Vel er búið að nemendum og starfsmönnum og er öll aðstaða í skólanum til fyrirmyndar.

Í Hofsstaðaskóla fer fram metnaðarfullt starf sem er í stöðugri þróun. Kennsluhættir eru fjölbreyttir og vellíðan nemenda í fyrirrúmi í anda Menntastefnu Garðabæjar. Læsi og leiðsagnarnám skipa stóran sess og þjónusta við nemendur með sérþarfir er öflug. Nánari upplýsingar um skólann má finna á vefsíðunni www.hofsstadaskoli.is 

Helstu verkefni og ábyrgð: 

  • Sinnir kennslu og hefur umsjón með nemendahópi
  • Skipuleggur nám og kennslu nemenda
  • Fylgist með námi og þroska allra nemenda sinna og leitast við að skapa kennsluaðstæður sem eru hvetjandi til náms, vinnusemi og þroska
  • Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagfólk
  • Tekur þátt í teymisvinnu með umsjónarkennurum í árgangi ásamt öðrum fagaðilum sem koma að nemendum
  • Vinnur að þróun skólastarfs í samráði við stjórnendur og samstarfsfólk

Hæfniskröfur:

  • Kennaramenntun og leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Háskólamenntun á sviði uppeldis og menntunarfræða
  • Íslenskukunnátta á stigi C1 skv. evrópska tungumálarammanum
  • Leikni í fjölbreyttum kennsluháttum æskileg
  • Reynsla af kennslu í grunnskóla eða starfi með börnum
  • Reynsla af Leiðsagnarnámi æskileg
  • Lipurð í samskiptum ásamt metnaði í starfi
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum, stundvísi og samviskusemi
  • Ánægja af starfi með börnum og ungmennum
  • Þekking á uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar er æskileg

Umsóknarfrestur er til 17. október 2024.

Nánari upplýsingar um starfið veita Hafdís Bára Kristmundsdóttir skólastjóri, og Margrét Einarsdóttir aðstoðarskólastjóri. Sími Hofsstaðaskóla er 590-8100 og netfang: hskoli@hofsstadaskoli.is 

Starfsmenn sveitarfélagsins fá hreyfistyrk, frítt í sund, á bókasafn Garðabæjar og Hönnunarsafn Íslands. Þá hefur starfsfólk í skólum Garðabæjar möguleika á að sækja um styrki í Þróunarsjóði leik- og grunnskóla Garðabæjar og er þeim ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi skóla bæjarins.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands. Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.

Umsækjendur eru beðnir um að sækja um með því að smella á Skrá inn og sækja um starf hér fyrir neðan.

Umsókn um starfið skal fylgja kynningarbréf og starfsferilskrá. Í kynningarbréfi skal gera grein fyrir ástæðu umsóknar með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið og upplýsingar um umsagnaraðila. Öllum umsóknum verður svarað.