Sérkennari í Hofsstaðaskóla

side photo

Hofsstaðaskóli auglýsir eftir sérkennara út skólaárið.
Í skólanum eru 480 nemendur í 1. - 7. bekk og þar starfa um 85 starfsmenn með það að markmiði að hlúa að nemendum námslega og félagslega og koma til móts við áhuga þeirra og getu. Vel er búið að nemendum og starfsmönnum og er öll aðstaða í skólanum til fyrirmyndar.

Í skólanum fer fram metnaðarfullt starf sem er í stöðugri þróun. Kennsluhættir eru fjölbreyttir og vellíðan nemenda í fyrirrúmi í anda Menntastefnu Garðabæjar. Læsi og leiðsagnarnám skipa stóran sess og þjónusta við nemendur með sérþarfir er öflug. Deildarstjóri stoðþjónustu er næsti yfirmaður sérkennara. Nánari upplýsingar um skólann má finna á vefsíðunni www.hofsstadaskoli.is 

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Skipuleggur nám og kennslu nemenda með sérþarfir
  • Sinnir kennslu nemenda
  • Vinnur að skólaþróun með stjórnendum og samstarfsfólki
  • Stuðlar að velferð nemenda og samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Tekur þátt í teymisvinnu

Menntun, hæfni og reynsla:

  • Leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf skal fylgja umsókn)
  • Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði grunnskóla
  • Reynsla af kennslu í grunnskóla æskileg
  • Reynsla af sérkennslu í grunnskóla er kostur
  • Lipurð og færni í mannlegum samskiptum ásamt metnaði í starfi
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Áhugi á skólaþróun
  • Íslenskukunnátta á stigi C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
  • Góð tölvukunnátta
  • Lausnamiðað viðhorf til flókinna úrlausnarefna

Umsóknarfrestur er til 15. október 2024. Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Nánari upplýsingar um starfið veita Margrét Einarsdóttir aðstoðarskólastjóri og Bergljót Vilhjálmsdóttir deildarstjóri stoðþjónustu. Sími Hofsstaðaskóla er 590-8100 og netfang: hskoli@hofsstadaskoli.is 

Starfsmenn sveitarfélagsins fá hreyfistyrk eftir 6 mánuði í starfi, frítt í sund, á bókasafn Garðabæjar og Hönnunarsafn Íslands eftir 3 mánuði í starfi. Þá hefur starfsfólk í skólum Garðabæjar möguleika á að sækja um styrki í Þróunarsjóði leik- og grunnskóla Garðabæjar og er þeim ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi skóla bæjarins.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands. Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.

Umsækjendur eru beðnir um að sækja um með því að smella á Skrá inn og sækja um starf hér fyrir neðan.

Umsókn um starfið skal fylgja kynningarbréf og starfsferilskrá. Í kynningarbréfi skal gera grein fyrir ástæðu umsóknar með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið og upplýsingar um umsagnaraðila. Öllum umsóknum verður svarað.